Innskráning í Karellen
news

Áræðnilotan hefst á Velli

19. 03. 2018

Sæl kæru foreldrar og vinir! Það styttist í páskanna og þá er nú vorið á næsta leyti. Áfram höldum við að fræða okkur og börnin í gegnum leikinn og í þessari viku hefst sjötta lotan hjá okkur sem við köllum Áræðnilotuna. Í þessari lotu er lögð áhersla á kjark, kraft, virkni og frumkvæði. Hér reynir á áræðni, kjark og framkvæmdagleði og kjarkæfingarnar geta verið af ýmsum. Hér er fengist við leiðtogahæfileika og hæfni til að þora að standa fyrir máli sínu, til dæmis með rökræðum og heimspekilegri úrvinnslu. Orðið Kjarkur er lotulykill þessarar viku. Í Mætti málsins höldum við áfram að bæta á orðaforðatréð okkar tengt "Dýrunum" og í hljóðainnlögninni er "Í" hljóð vikunnar. Þjálfun spurnarorða, styrkja skilning á tengslum hluta við heild, styrkja skilning á notkun hluta, svara spurningum um ímyndaða atburði eru hluti af þeim hugtakaskilning sem nemendurnir okkar (3-6 ára) munu æfa. Eins og áður hefur verið komið að þá eru yngstu nemendurnir okkar í orðaforða og hljóðainnlögn. Við höldum áfram upprifjuninni í Tákn með tali og verðum fram að páskum.

Eigið gleðilega viku kæru vinir og vinkonur.

© 2016 - Karellen