Innskráning í Karellen
news

Framkoma er lotulykill vikunnar

18. 09. 2019

Sæl veriði okkar kæru foreldrar og vinir

Þessa vikuna er orð vikunnar FRAMKOMA en það er okkar fjórði og síðasti lotulykill í Aga lotunni okkar. Það er aldeilis búið að vera gaman að fylgjast með nemendunum í hinum og þessum agaæfingum í leik og starfi undanfarnar vikur. Mikil gleði og gaman. Því það að æfa aga þarf sko ekki að vera leiðinlegt. Börnin sækja í röð, reglu og rútínu og er það eitt af okkar aðalsmerkjum. Þess ber einnig að nefna að Aga lotan er frumstig félagsþjálfunar.

Í Mætti málsins (markvissri málörvun) er komið nýtt hugtak í orðaforðakennslunni okkar, "Líkami og hreyfing". Í hljóðainnlögninni sem 2-5 ára nemendur eru í þá er "N" hljóð vikunnar. Okkar elstu nemendur eru komnir vel á veg í stafainnlögn og hvet ég ykkur foreldra að fylgjast með á tilkynningatöflum kjarna því þar stendur hvaða stafi er verið að þjálfa í stafainnlögninni hverju sinni. Í tákni með tali eru táknin ,,Koma‘‘ og ,,fara‘‘.

Eigið frábæra viku kæru vinir.

© 2016 - Karellen