Innskráning í Karellen
news

Gjöf til Vallar

27. 09. 2018

Tvær konur frá Lionsklúbbnum Æsu komu hingað á dögunum færandi hendi og gáfu leikskólanum tvö sett af frábærum bókum, spili og Stafaspjöldum sem henta afar vel við kennslu á læsi. Steinunn okkar tók við þessari gjöf fyrir hönd skólans. Við á Velli erum afar þakklát við þessa gjöf og hugulsemi. Gjöf þessi mun svo sannarlega nýtast vel hér á Velli í starfi með okkar nemendum. Takk fyrir okkur kæru vinkonur í Lionsklúbbnum Æsu.

© 2016 - Karellen