Innskráning í Karellen
news

Gleði er orð vikunnar

03. 02. 2020

Sæl veriði kæru foreldrar og vinir.

Nú hefjum við fjórðu vikuna í jákvæðnilotunni og er orð vikunnar "gleði". Gleðin verður æfð með öllum tiltækum ráðum og munum að söngur og hreyfing ýtir best við þeim boðefnum heilans sem valda taugafræðilegri gleði.

Eins og alltaf leggjum við mikið uppúr því að hafa gaman í öllu okkar starfi. Lífið verður alltaf miklu skemmtilegra þegar við veljum að vera glöð og hafa gaman að hlutunum. Glatt viðmót er líka á margan hátt valkostur og ávani. Það er nefnilega hægt að venja sig á að vera glaður og sjá hlutina í víðara og jákvæðara samhengi en gengur og gerist.

Í málörvun hefst í dag nýtt orðaforðahugtak sem kallast "MATUR" og ætlum við að efla orðaforðann í því. Hljóð vikunnar er hljóðið "S" og tákn vikunnar eru táknin "Borða" og "Drekka". Stærðfræðiinnlögn skipar enn stórann sess hjá elstu nemendunum okkar og áfram höldum við áfram að efla hugtakaskilning barna 3-6 ára. Allt í gegnum leikinn eins og áður. Við á Velli ætlum að eiga gleðilega viku og vonum að þið gerið það líka.

Eigið dásamlega viku.

© 2016 - Karellen