Sæl kæru vinir
Við byrjum hress og kát nýja viku. Þá er önnur vika í Agalotunni okkar hafin og er lotulykill/orð vikunnar í kynjanámskránni orðið ,,hegðun‘‘. Það er góð undirstaða fyrir lífið. Mikilvægt er að börnin læri á umhverfi sitt, helstu hegðunarreglur og læri góðan samskiptamáta. Hér í skólanum er þetta m.a. gert til þess að starf vetrarins geti verið friðsælt, árangursríkt og ánægjulegt fyrir alla. R-reglurnar okkar (röð-regla-rútína) verða áfram í hávegum hafðar hjá okkur á öllum sviðum og þess ber að geta að þær stuðla að ró , öryggi og aga.
Í orðaforðakennslu þessa vikuna ætlum við að leggja áherslu á ýmislegt sem tengist líkamanum. Stafur/hljóð vikunnar er ,,M’’. Þula vikunnar er þulan um líkamann og þulan um figurna. Söngvar vikunnar er ,, Hreyfa litla fingur’’, ,,Þumalfingur’’ og ,,Ég ætla að syngja’’.
Eigið dásamlega viku.