Kæru foreldrar, forráðamenn og vinir
Við á leikskólanum Velli sendum ykkur og fjölskyldum ykkar hugheilar jóla og nýárskveðjur með innilegu þakklæti fyrir frábært samstarf og margar gleðistundir á árinu sem er að líða. Megi nýtt ár reynast ykkur gjöfult af kærleik og hamingju.
Um leið viljum við minna á að leikskólinn verður lokaður milli jóla og nýárs. Við opnum svo aftur þann 2. janúar 2020.
Bestu kveðjur
Starfsfólk Vallar