Innskráning í Karellen
news

Kurteisisvika

10. 09. 2019

Í gær hófst vika þrjú í Agalotunni. Kurteisi er lotulykill vikunnar í kynjanámskránni okkar og munum við æfa það með ýmsum æfingum. Þjálfun í kurteisi og mannasiðum, æfing í að heilsast og kveðjast, borðsiðir og umgengi í fataklefa eru raunveruleikatengd verkefni í þessari lotu. Í orðaforðakennslunni erum við ennþá í ,,Ég‘‘ og er stafur/hljóð vikunnar ,,D‘‘. Í tákn með tali tökum við fyrir táknin ,,fara í röð‘‘ og ,,vinur‘‘. Elstu nemendurnir halda áfram í sinni stafainnlögn sem og hugtakaskilningur verður þjálfaður hjá 3 ára og eldri. Eins og sjá má er nóg um að vera og allt gert í gegnum leikinn. Mikið fjör og mikið gaman.

Eigið yndislega viku kæru vinir

© 2016 - Karellen