Innskráning í Karellen
news

Mottudagurinn-litríkir sokkar!!!

14. 03. 2019

Sæl veriði

Ár hvert hér á landi er Marsmánuður tileinkaður körlum og baráttu þeirra við krabbameinum. Einn dagur er sérstaklega tileinkaður þessari baráttu en það er sjálfur Mottudagurinn. Hann verður að þessu sinni Á MORGUN föstudag 15. mars um land allt. Þar sem ekki allir geta safnað í raunverulega mottu (skegg), þá hefur verið gripið til þess ráðs að finna annað sameiningartákn, sem eru skrautlegir sokkar. Við á Velli viljum taka þátt og sýna samstöðu og gerum það með því að hvetja alla nemendur og starfsfólk að mæta í skrautlegum sokkum í skólann Á MORGUN.

Hlökkum til að sjá alla skrautlegu sokkana á morgun og mögulega nokkrar mottur.

Hafið þið það sem allra best

© 2016 - Karellen