Innskráning í Karellen
news

Nálægð er orð vikunnar

25. 02. 2019

Sæl veriði kæru vinir.

Takk fyrir góða mætingu í konukaffið okkar sem var síðasta föstudag. Það var gaman að sjá hversu margir sáu sér fært um að mæta. Núna er hafin ný vika og áfram höldum við. Enn erum við í Vináttulotunni og lotulykill þessarar viku er orðið "Nálægð". Vinátta felur í sér nálægð, tryggð, stuðning og jákvæð samskipti. Gæði vináttu skipta miklu máli fyrir börn, því að talið er að náinn vinskapur sem mikill er að gæðum auki þroska og velgengi barna á félagslegum sviðum og hafi jákvæð áhrif á börn. Vinátta spilar stórt hlutverk í daglegu lífi barna og skiptir þau miklu máli. Vinátta er börnum nauðsyn því að hún kennir félagslega hegðun og er mikilvæg fyrir tilfinningaþroska þeirra. Vinir styðja hver annan og eru til staðar þegar eitthvað bjátar á og veita huggun. Það má því ætla að strax í upphafi skipti miklu máli að börn læri góð samskipti sem byggja á virðingu og trausti, því að samskiptin leggja grunn að vináttu til frambúðar.

Í Mætti málsins (markvissri málörvun) hefjum við 2.viku í orðforðahugtakinu " Umhverfi (inni)". Hljóð vikunnar er hljóðið "hr" (hringja-hratt-hraður o.s.frv.) og Tákn vikunnar í Tákn með tali eru táknin "Hlusta" og "Lesa". Í öðru höldum við áfram í þ.e. að efla hljóðkerfisvitund barna og hugtakaskilning og einnig að leggja inn stærðfræði hjá okkar elstu. Skemmtilegar stundir framundan með áhugasömum nemendum.

Eigið yndislega stundir þessa vikuna kæru vinir.

© 2016 - Karellen