Innskráning í Karellen
news

Samstaða er orð vikunnar

23. 11. 2020

Sæl veriði kæru vinir á þessum fallega mánudegi. Í dag hefst fjórða vikan í Samskiptalotunni. Lotulykill þessarar viku er orðið Samstaða. Það orð stendur fyrir að standa saman. Standa með sínum hvort sem það er vinir, ættingjar, skólafélagar o.s.frv. Sýna samhug í verki og hverju það skiptir að sýna samstöðu. Það er mikilvægt að vita í tengslum við Samskipti og efla sína færni í því hvort sem maður er ungur eða gamall. Þetta er gott innlegg í lífsins önn.

Í orðaforðakennslunni leggjum við áherslu á hugtakið afstaða. Sem dæmi um afstöðuhugtök má nefna fyrir framan, fyrir aftan, inn í, undir, fyrir utan og fyrir innan. Hljóð vikunnar er ,,G’’ og í tákni með tali eru tákn vikunnar ,,fyrir framan’’ og ,,fyrir aftan’’. Söngur vikunnar er ,,Fimm litlir apar sátu upp í tré’’ og þula vikunnar er ,,Talnaþula’’.

En dásamleg vika framundan hjá okkur. Vonandi verður vikan ykkur góð.

© 2016 - Karellen