Innskráning í Karellen
news

Starfið er hafið á ný

16. 08. 2018

Sæl og blessuð kæru vinir!

Í gær opnaði leikskólinn og starfið hafið á nýjan leik. Mikið afskaplega erum við glöð og ánægð að hitta okkar elsku nemendur á ný. Starfið í vetur verður með hefðbundnu sniði líkt og önnur ár þ.e. áherslu á kynjanámskránna og Mátt Málsins (markviss málörvun) og allt kennt í gegnum leikinn. Eitthvað verður um frídaga í vetur þ.e. að leikskólinn verður lokaður sbr. rauðir dagar og starfsdagar kennara. Einnig verður nokkrir hittingar sem við bjóðum foreldra í heimsókn og hefðbundin foreldraviðtöl. Dagsetningar á þessum dögum má finna í skóladagatalinu (sjá link)http://vollur.hjalli.is/Skolastarfid/Skoladagatal . Við hvetjum ykkur kæru foreldrar að kynna ykkur þetta nánar.

Hlökkum til að eiga í góðu og skemmtilegri samvinnu í vetur

kveðja

Kennarar á Velli


© 2016 - Karellen