Innskráning í Karellen
news

Sumarið í allri sinni mynd

22. 05. 2018

Sæl veriði á ný.

Vonandi hafið þið átt góða Hvítasunnuhelgi. Framundan er dásamleg vika með fjórum virkum dögum sem við munum nýta af kappi til að gleðjast með okkar nemendum í gleði og söng. Ný styttist heldur betur í sumarið og því eflum við orðaforðann aðeins meir í því skemmtilega hugtaki en hefjum um leið upprifjun í hljóðunum. Við höfum sem sagt lokið formlegri innlögn á hljóðunum sem dagskrá var um þennan veturinn. Nú skapast tækifæri næstu vikurnar að rifja upp hljóðin sem og táknin í tákn með tali. Ásamt þessu (málörvun) og fleira gleymum við ekki útiverunni sem er okkur öllum svo nauðsynleg. Við bíðum líka spennt eftir að fyrsta hluta á leiksvæðinu okkar verði lokið. Leiksvæðið lítur allaveganna vel út, það sem er komið, og verður gaman að fara út að leika á því þegar það verður tilbúið.

Við vonum að þið eigið góða viku framundan


© 2016 - Karellen