Innskráning í Karellen
news

Tjáning er lotulykill vikunnar

25. 10. 2021

Sæl veriði kæru vinir.

Í dag hefst fjórða vikan í Sjálfstæðislotunni okkar. Lotulykill þessarar viku er orðið "Tjáning". Það að geta tjáð sig er mikilvægur eiginleiki fyrir hvern og einn að hafa í lífinu. Við viljum að nemendurnir okkar tjái sig og finni það öryggi að þau geta það alltaf í hvaða aðstæðum sem er. Það er þó þannig að ekki er öllum þessi eiginleiki í blóð borinn og við misjöfn eins og við erum mörg. Ástæðurnar fyrir því geta verið margar. En út af því teljum við afar mikilvægt að þjálfa þennan þátt sem og aðra hjá okkar nemendum. Þetta er liður í einstaklingsþjálfunni okkar hjá Hjallastefnunni.

Í orðaforðakennslunni þessa vikuna leggjum við áherslu á ,,dýr’’. Hljóð/stafur vikunnar er ,,J’’ og í Tákni með tali eru tákn vikunnar ,,kisa’’ og ,,hundur’’. Þula vikunnar er ,,Sungu með mér svanur, örn’’ og söngvar vikunnar eru ,,Krumminn á skjánum’’, ,,Fimm litlir apar’’, ,,Fiskarnir tveir’’ og ,,Fljúga hvítu fiðrildin’’. Að efla nemendur okkar í hljóðkerfisvitund er markmið hjá 3-6 ára börnum hjá okkur, eins og margir vita. Að efla þau í hljóðkerfisvitund gerum við allt í gegnum leik með mismunandi hætti og fer eftir þroska barna hverju sinni hvað er æft. Með þessu er átt við að við erum að æfa nemendur okkur í rími, setningarmyndun, fornöfnum, andstæðum, afstöðuhugtökum, margræðum orðum o.s.frv. Stafainnlögn heldur sínu striki hjá elstu nemendum okkar.

Hér fyrir neðan er slóð á lag með hljóði vikunnar (Lubbi finnur málbein) (J).

https://www.youtube.com/watch?v=uet8adzTCxs

Eigið dásamlega viku kæru vinir.

© 2016 - Karellen