Innskráning í Karellen
news

Upprifjun fram að sumarfríi

08. 06. 2017

Sæl veriði mín kæru. Nú er júní hafinn í allri sinni dýrð og dásemd og fáum við vonandi að sjá þessa gulu á lofti sem mest þennan mánuðinn. Þessa vikuna og næstu vikur (fram að sumarfríi) ætlum við að vera með áherslu á upprifjun í öllu sem tengist hjallískum þáttum og þáttum tengt okkar markvissri málörvun sem kallast Máttur málsins. Þá rifjum við upp það helsta sem við höfum unnið að í vetur og af mörgu er að taka. Orðaforði, hljóð, rím, hlustun, stærðfræði, stafir, fornöfn, eintala og fleirtala, tákn með tali og fleira og fleira. Við minnum ykkur foreldra á lestur með börnunum. Það eflir svo margt tengt málörvun og eru þetta einnig dýrðarstundir sem við getum átt með okkar börnum.

© 2016 - Karellen