Innskráning í Karellen
news

Vika tvö í Agalotu

03. 09. 2018

Sæl kæru vinir.

Nú er Ljósanótt að baki og vonandi hafa allir átt góða helgi. Við byrjum hress og kát nýja viku og er þetta vika tvö í Aga-lotunni. Lotulykill/orð þessara viku í kynjanámskránni er orðið "Hegðun". Kennslan felst m.a. í því að börnin að læra á umhverfi sitt, helstu hegðunarreglur og læra góðan samskiptamáta. Ástæðan fyrir þessu er sú að við viljum að starf vetrarins geti orðið friðsælt, árangursríkt og ánægjulegt fyrir alla. R-reglurnar okkar (röð- regla-rútína) verða áfram í hávegum hafðar hjá okkur í Hjallastefnustarfi á öllum sviðum en þess ber að geta að þær stuðla að ró, öryggi og aga.

Í Mætti málsins (markvissri málörvun) höldum við áfram í orðaforðahugtakinu "Ég" í orðaforðakennslunni okkar. Í hljóðainnlögninni fjöllum við um hljóðið/stafinn "B". Hugtakaskilningur heldur sínum sessi sem og stafainnlögn 5 ára barna heldur áfram. Tákn þessarar viku eru "Glaður" og "Leiður". Tákn með tali (TMT) er málörvandi fyrir öll börn og því óhætt að hvetja foreldra og kennara sérstaklega yngri barna að nota TMT sem skemmtilegt málörvunartæki. Einnig ber þess að geta að TMT nýtist vel börnum með búa við fjöltyngi.

Eigið góða viku kæru vinir

© 2016 - Karellen