Innskráning í Karellen
news

Vor og sumarlota

11. 05. 2020

Sæl kæru vinir

Mikið er gott að eðlilegt leikskólalíf sé hafið á nýju og yndislegt að sjá leikskólann iða af lífi og gleði eftir þennan skrítna tíma sem við öll erum búin að upplifa. Með bjartsýnina að vopni höldum við glöð inní þessa viku. Það verður sem fyrr nóg að gera og vert að geta þess að afar spennandi tímar eru framundan hjá okkar elstu nemendum. Miðvikudaginn 13. maí fara þau með kennurum sínum í útskriftarferð. Um er að ræða dagsferð í Vatnaskóg þar sem ýmislegt verður brallað.

Þann 27. apríl hófst Vor og sumarlotan hér á Velli og mun hún standa til 5. júní. Þar kennir margra grasa og rétt að minna á að við ætlum að reyna að vera eins mikið úti með börnin og mögulegt er enda dásamlegt að upplifa vorið og sumarið þannig. Við munum einnig halda áfram að efla orðaforða barnanna í orðaforðahugtakinu ,,umhverfi úti‘‘. Þar eru mörg orð/hugtök sem hægt er að kenna/kynna/vinna með og allt í gegnum leikinn. Börnin munu sem dæmi fræðast mikið um mikilvægi þess að ganga vel um náttúruna og henda ekki rusli út um allt og mikilvægi þess að hugsa vel um jörðina okkar. Í hljóðainnlögninni er hljóð vikunnar hljóðið "ö" og í tákn með tali eru tákn vikunnar táknin "bolti" og "hlaupa". Í viðbót við þetta höldum við áfram okkar daglega plani, líf og fjör á Velli.

Eigið dásamlega viku kæru vinir

© 2016 - Karellen