Innskráning í Karellen
news

Framkoma er orð vikunnar

19. 09. 2022

Góðan daginn kæru vinir

Nú líður á Aga lotuna okkar og er fjórða vikan að hefjast í henni. Lotulykill þessara viku er orðið Framkoma. Við kennum nemendum okkar að koma vel fram og eflum þeirra samskiptafærni sbr. við skiptumst á að tala, hlustum með athygli á aðra, grípum ekki fram í fyrir öðrum, verum skýr og segjum það sem okkur finnst, virðum skoðanir annarra og sýnum tillitssemi. Allt eru þetta þættir sem er gott að æfa hvort sem maður er ungur eða eldri.

Í orðaforðanum leggjum við áherslu á ,,Umhverfi, inni’’ og hljóð/stafur vikunnar er ,,N’’ og tákn vikunnar eru táknin ,,leikskóli'' og ,,fataklefi''. Við ætlum að halda áfram með að skoða þuluna ,, Faðir þinn er róinn, að sækja fisk á sjóinn’’ og lag vikunnar er ,,Ég á lítinn skrítinn skugga’’.

Hér fyrir neðan er slóð á lag með hljóði vikunnar (N).

https://www.youtube.com/watch?v=z90BNWpQsnE

Í dag er síðasti dagur lestrarátaksins og er ótrúlega gaman að sjá hversu vel hefur gengið að lesa heima.

Við viljum minna foreldra á að leikskólinn verður lokaður þann 23. september n.k. vegna starfsdags.

Eigið frábæra viku kæru vinir

© 2016 - Karellen