Innskráning í Karellen
news

Gleðivika á Velli

07. 02. 2023

Góðan daginn kæru vinir.

Þessa vikuna er Gleðivika á Velli. Það er uppskeruvika Jákvæðnilotu. Þá lýtum við yfir farin veg og rifjum upp það sem við höfum fjallað um síðastliðnar vikur. Við höfum t.d. lagt áherslu á jákvætt hugarfar, bjartsýni, unnið verkefni með jákvæðar setningar, sungið og dansað. Allt unnið í gegnum leikinn. Segja má með sanni að undanfarnar vikur í þessari lotu hafa verið afar gleðilegar og jákvæðar og vonum að börnin tileinki sér að horfa björtum augum á lífið. Þá verður allt svo miklu betra.

Stafur/hljóð vikunnar er ,,T’’.


Eigið góða viku kæru vinir

© 2016 - Karellen