Innskráning í Karellen
news

Áræðnilotan hefst í dag

22. 03. 2021

Sæl kæru foreldrar og vinir!

Það styttist í páskanna og þá er nú vorið á næsta leyti. Áfram höldum við að fræða okkur og börnin í gegnum leikinn og í þessari viku hefst sjötta lotan hjá okkur sem við köllum Áræðnilotuna. Í þessari lotu er lögð áhersla á kjark, kraft, virkni og frumkvæði. Hér reynir á áræðni, kjark og framkvæmdagleði og kjarkæfingarnar geta verið af ýmsum. Hér er fengist við leiðtogahæfileika og hæfni til að þora að standa fyrir máli sínu, til dæmis með rökræðum og heimspekilegri úrvinnslu. Orðið Kjarkur er lotulykill þessarar viku.

Í orðaforðakennslunni þessa vikuna leggjum við áherslu á orð tengt ýmis konar hreyfingu.Stafur/hljóð vikunnar er ,,Ð’’ og í tákni með tali eru orðin ,,undir’’ og ,,ofan á/ upp á''. Þula vikunnar er ,,Maður og mús’’ og söngvar vikunnar eru: Höfuð, herðar, hné og tær/Við klöppum öll í einu/Upp á fjall og Lína langsokkur.

Við viljum minna á starfsdag kennarar föstudaginn 26. mars. Þennan dag verður leikskólinn lokaður.

Eigið gleðilega viku kæru vinir og vinkonur.

© 2016 - Karellen