Læsis- og stærðfræðiáætlun Vallar var unnin með það að markmiði að efla orðaforða barna og styðja kennara við orðaforðakennslu í daglegu starfi.
****
Læsis- og stærðfræðiáætlunin er einnig hugsuð sem verkfæri til að virkja foreldra í að efla orðaforða barna sinna. Áætlunin var þýdd á ensku og pólsku, hún er hengd upp í fataklefa, send heim í föstudagspósti og er vistuð inni á heimasíðu Vallar.
****
Myndbandið Orð skipta máli var einnig unnið með það að markmiði að fræða foreldra um mikilvægi þess að efla orðaforða barna. Myndbandið flytur skilaboð sem aldrei eru of oft ítrekuð.