Sæl veriði kæru vinir!
Mikil gleði var í morgun að sjá dásemdarsnjóinn og auðvitað förum við út og nýtum okkur hann meðan hann er. Það er svo gaman að fara út að leika í snjónum. Áfram höldum við í jákvæðislotunni og er orð vikunnar Bjartsýni. Jákvæðni er ofboðslega mikilvægur eiginleiki. Að búa yfir jákvæðni er lykilþáttur á hvaða sviði lífsins sem er og gerir tilveruna svo miklu auðveldari. Hún drífur okkur áfram þegar illa gengur og hvetur mann til þess að taka áhættu. Við kennum börnum að líta á björtu hliðarnar, að vera bjartsýn. Við hvetjum nemendur okkar að að taka áhættu og ögra sjálfum sér. Með þeirri getu gerir þau betur í stakk búin að yfirstíga áskoranir. Lykillinn er að gefa þeim verkefni sem reyna á hæfni þeirra, eru erfið en leysanleg. Í öðru lagi sýnum við börnum ástúð og kærleika og erum þeirra fyrirmyndir í samskiptum. Með fallegum samskiptaháttum eiga nemendur meiri tækifæri að þróa með sér bjartsýni og vera vongóð. Ást frá foreldrum kennir líka börnum að treysta öðru fólki. Að hrósa börnum á einlægan hátt skiptir líka miklu máli og reynum við alltaf að vera dugleg í því. Við látum nemendur okkar vita hvað það stóð sig vel í og hvetjum það til frekari afreka. Við kennum þeim lausnamiðaða hugsun það er að leysa má verkefni á ýmsan máta og verkefni eru ekki óyfirstíganleg. Við kennum þeim að vera með jákvæðnina og bjartsýnina að leiðarljósi.
Í markvissri málörvun, Mætti Málsins, höldum við dampi og höldum áfram að efla orðaforðann í Formum. Hljóð vikunnar er "Þ" og tákn vikunnar í Tákn með tali er "Heitur" og "Kaldur". Stærðfræðiinnlögn hjá elstu er farin vel af stað sem og að efla hugtakaskilning hjá börnum 3-6 ára hér á Velli. Allt á blússandi siglingu.
Við minnum á Bóndadagskaffi hjá okkur næsta föstudag 25.jan´19 milli kl.14:00-15:30. Þá er karlkynið sérstaklega velkomið í heimsókn en auðvitað eru allir foreldrar velkomnir að koma.
Eigið góða viku kæru vinir