Innskráning í Karellen
news

Bleikur dagur næsta föstudag!!!

10. 10. 2018

Bleiki dagurinn verður haldinn hátíðlegur næstkomandi föstudag 12. október 2018 um land allt. Þann dag eru landsmenn hvattir til þess að sýna stuðning við þá sem greinast með krabbamein og aðstandendur þeirra með því að klæðast bleiku og hafa bleikt í fyrirrúmi. Við á Velli ætlum að sjálfsögðu að taka þátt og hvetjum alla nemendur að mæta í einhverju bleiku næsta föstudag.

En svo minnum við aftur á foreldrakaffið sem verður á morgun, fimmtudag, í leikskólanum. Á yngri kjarna verður kaffið milli kl.14:00 og 15:30. En hjá eldri, á Bláa, Græna, Rauða og Gula kjarna, verður kaffið á milli kl.8-00 og 9:30. Vonandi sjáið þið ykkur fært um að mæta kæru foreldrar.

Kærleikskveðja

© 2016 - Karellen