Innskráning í Karellen
news

Hegðun er lotulykill vikunnar

04. 09. 2017

Sæl veriði

Þá er önnur vika í Aga-lotunni okkar hafin og er lotulykill/orð vikunnar í kynjanámskránni orðið "Hegðun". Það er góð undirstaða fyrir lífið. Börnin þurfa að læra á umhverfi sitt, helstu hegðunarreglur og læra góðan samskiptamáta. Hér í skólanum er þetta m.a. gert til þess að starf vetrarins geti verið friðsælt, árangursríkt og ánægjulegt fyrir alla. Þið sem þekkið okkar R-reglur (röð- regla-rútína) vita að þær eru alltaf í hávegum hafðar hjá okkur í Hjallastefnustarfi á öllum sviðum og stuðla einnig að ró, öryggi og aga. Þaulhugsuð dagskrá og einfaldleiki í öllu skipulagi ...meir um þetta í næstu viku.

Í Mætti málsins (markvissri málörvun) erum við enn í "Ég" í orðaforðakennslunni okkar. Í hljóðainnlögninni fjöllum við um hljóðið/stafinn "B". Hugtakaskilningur heldur sínum sessi sem og stafainnlögn 5 ára barna heldur áfram. Það var gaman að fylgjast með þeim nemendum í síðustu viku og sjá áhuga hjá þeim að kynnast betur stöfunum. Á Velli, líkt og margir vita, að þá notum við Tákn með tali í starfi fyrir þá sem það þurfa og leggjum við tvö tákn á viku fyrir alla að kynnast. Tákn þessarar viku eru "strákur" og "stúlka". Tákn með tali (TMT) er málörvandi fyrir öll börn og því óhætt að hvetja foreldra og kennara sérstaklega yngri barna að nota TMT sem skemmtilegt málörvunartæki. Einnig ber þess að geta að TMT nýtist vel börnum með búa við fjöltyngi.

© 2016 - Karellen